John 14

1,,Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. 2Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður, að ég færi burt að búa yður stað? 3Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað, kem ég aftur og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig þar sem ég er. 4Veginn þangað, sem ég fer, þekkið þér.`` 5Tómas segir við hann: ,,Herra, vér vitum ekki, hvert þú ferð, hvernig getum vér þá þekkt veginn?`` 6Jesús segir við hann: ,,Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig. 7Ef þér hafið þekkt mig, munuð þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann.`` 8Filippus segir við hann: ,,Herra, sýn þú oss föðurinn. Það nægir oss.`` 9Jesús svaraði: ,,Ég hef verið með yður allan þennan tíma, og þú þekkir mig ekki, Filippus? Sá sem hefur séð mig, hefur séð föðurinn. Hvernig segir þú þá: ,Sýn þú oss föðurinn`? 10Trúir þú ekki, að ég er í föðurnum og faðirinn í mér? Orðin, sem ég segi við yður, tala ég ekki af sjálfum mér. Faðirinn, sem í mér er, vinnur sín verk. 11Trúið mér, að ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þér gerið það ekki, trúið þá vegna sjálfra verkanna. 12Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig, mun einnig gjöra þau verk, sem ég gjöri. Og hann mun gjöra meiri verk en þau, því ég fer til föðurins. 13Og hvers sem þér biðjið í mínu nafni, það mun ég gjöra, svo að faðirinn vegsamist í syninum. 14Ef þér biðjið mig einhvers í mínu nafni, mun ég gjöra það. 15Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín. 16Ég mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan hjálpara, að hann sé hjá yður að eilífu, 17anda sannleikans, sem heimurinn getur ekki tekið á móti, því hann sér hann ekki né þekkir. Þér þekkið hann, því hann er hjá yður og verður í yður. 18Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlausa. Ég kem til yðar. 19Innan skamms mun heimurinn ekki sjá mig framar. Þér munuð sjá mig, því ég lifi og þér munuð lifa. 20Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. 21Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau, hann er sá sem elskar mig. En sá sem elskar mig, mun elskaður verða af föður mínum, og ég mun elska hann og birta honum sjálfan mig.`` 22Júdas _ ekki Ískaríot _ sagði við hann: ,,Herra, hverju sætir það, að þú vilt birtast oss, en eigi heiminum?`` 23Jesús svaraði: ,,Sá sem elskar mig, varðveitir mitt orð, og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gjöra okkur bústað hjá honum. 24Sá sem elskar mig ekki, varðveitir ekki mín orð. Orðið, sem þér heyrið, er ekki mitt, heldur föðurins, sem sendi mig. 25Þetta hef ég talað til yðar, meðan ég var hjá yður. 26En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður. 27Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist. 28Þér heyrðuð, að ég sagði við yður: ,Ég fer burt og kem til yðar.` Ef þér elskuðuð mig, yrðuð þér glaðir af því, að ég fer til föðurins, því faðirinn er mér meiri. 29Nú hef ég sagt yður það, áður en það verður, svo að þér trúið, þegar það gerist. 30Ég mun ekki framar tala margt við yður, því höfðingi heimsins kemur. Í mér á hann ekki neitt. 31En heimurinn á að sjá, að ég elska föðurinn og gjöri eins og faðirinn hefur boðið mér. Standið upp, vér skulum fara héðan.``
Copyright information for Icelandic